Þar sem ég á 20 ára afmæli í næsta mánuði (áhugasamir fylgist með
teljaranum mínum ) komst ég að því að ég er orðin gömul. Kallið
á lækninn setjið mig á róandi, gefið mér göngugrind elli árin
eru komin!!
Til þess að sanna mál mitt.
Ég
eyði mörgum klukkutímum í að pirra mig yfir málfari krakkana nú til
dags.
Allir hlutir eru gaurar. ( drengur bendir á sportbíl ) ,,sjáðu
þennan gaur maður, flottur.. er þaggi kallinn”
Og
flestir krakkar tala um sig í 3 persónu. ( drengur er að klæða sig
upp fyrir skemmtun og skoðar sig í spegli) ,,er kallin ekki
flottur” ( stúlka er að skoða sig í spegli fyrir skemmtun) ,,nú er
sko gellan orðin flott”
Þetta er ekkert nema hrottafenginn meðferð á íslensku tungunni
okkar.
Svo er það líka internetið. Í gamladaga, var ég sko svellköld
og harður irkari. Irkið var mitt annað líf, þar sem hins
feikivinsæla Ret|na (sagt Retina) lagði sitt að mörkum til að pirra
fólk, og gekk yfir sín irk ævintýri með sínum irk vinum. Svo kom
þetta msn til sögunar, og maður persónugerði samtölin sín betur og
maður hreiðraði um sig þar. Svo ári...... 3-4 árum seinna þá
hringdi ég mig aftur inn á gamla, irkið.. og sá að það hefur breyst
mjög mikið. Börn höfðu
yfirtekið rásina #iceland, sem hafði aðeins verið notuð í samskipta
auglýsingar... eða aðrar álíka auglýsingar. Ég kom þangað inn og
var já rásin hernumin af börnum, öllum á mismunandi stigum
þroskans.
Ég
hélt fyrst að ég hafði farið óvart inn á vitausa rás, enda skildi
ég ekki orð sem stóð þar. Ég sá helling af stöfum, ég þekkti 4
hvert orð og einhverjar gamlar styttingar eins og. LOL, ROFL, og
OMG. Eftir smá stund tókst mér að finna út að þetta var annaðhvort
nýtt form af íslensku, eða mjög illa stafsett íslenska.
Og
ég gerði mér hugmyndir um hvernig hægt væri að túlka /þýða sumar
setningar.
Eins og ,,é atl far bleble” datt mér í hug að væri –ég ætla að
fara bless bless-
,,É er ekk alg drsla skomm” datt mér í huga að væri –ég er
ekki alveg drusla sko-
,,É va að riðla gauhr í gæ og omfg kvah han var góðr, alg snld
mahhr skomm“
ég
held það væri einhvað álíka og –ég var að riðla gaur í gær og..- ég
skildi ekki orð sem kom eftir það.
En
ef ég las rétt úr orðinu... þá var þessi 12 ára stúlka vonandi að
grínast... ekkert 12 ára barn gerir svoleiðis..... nei...
auðvitað ekki......
Ég
fór hreinlega bara út af irkinu... ég átti ekki heima þarna, enginn
sess fyrir gamlingja á irkinu!
En
svo líka til að böggast meira yfir ungdóminum. Það fer voðalega í
mig að ganga í gegnum kringluna eða smáralind.. og lenda í því að
labba framhjá stúlknahóp sem er að tísta og skríkja, segjandi
einhvað í líkindum við
,,svo sagði hann.. að við ættum að fara á rúntinn.. og LOL!!
Þið trúið þessu ekki OMG skohh.. hann sagði að ég mætti keyra” – og
þær svara ,,omg!!! Omg!! Eða lol!! Omg og lol er notabene borið
fram O.M.G og L.O.L!!!!!