hmm....
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 623 dögum
Förum í Brúðkaupsferðina okkar - Í Kringum Landið
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 9 febrúar
26.01.2006 00:12:24 / kibba

bloggaði núhhh!!

 

Sorry bloggleysið! Mikið að gera, og ekkert nenn í blogg!

Margt að segja, samt svo fá orð

Systirin eldri er búin að eiga. Hún og maðurinn hennar eignuðust son 17 janúar!

16 merkur og 54 cm! Þetta er frumburðurinn þeirra, og fyrsta barnabarn foreldra minna. Þannig gleði gleði þar!

Hinni systur minni gengur bara vel, hún er að gera það gott í bæði vinnu og lífinu mjög hrifin af nýlegum atvikum, og bara gott að lifa svona :)  megi framtíðin halda áfram björt og brosandi með bylgjunni

Ég er bara nokkuð sátt, fyrir utan nokkra minor galla, sem er auðveldara í raun að telja upp en allt það góða, því það er meira af góðu en slæmu :) en hvar á mann að byrja…? Það er svo langt í byrjunina :Þ

Desember var mér mjög góður, ég vann nóg og skemmti mér meira, naut tímans með manninum og annars félagsskapar.

Það eina sem hrjáði mig þennan mánuðinn var hvað ég ætti að gefa fólki í jólagjafir, hver fengi jólakort ( engin :S ) og verkur í maganum sem kom alltaf þegar ég borðaði.

Jólin voru góð. 24, des áttum við hákon hálfs árs sambandsafmæli, eins og í gæt áttum við 7 mánaða afmæli :)

Systir mín eldri átti líka 29 ára afmæli þann dag litla jólabarnið.

Það kom upp hið venjulega jóladrama, sem hellti sér fram í öðruvísi mynd! Hið ómissandi mikla jóladrama , það var leyst úr þeirri flækju, goodie goodie.

Gjafirnar sem e´g fékk voru óaðfinnanlegar…. Nema ein…. Ég glotti en yfir því vali… og ég skipti þeirri gjöf. ( takk samt doddi :) )

Ég fékk semsagt breskustu náttföt í heimi, bæði þægileg og bláröndótt, og DvD myndina Miss congiality frá jóhönnu systur og unnari mági. Mjög hrifin af þeirri gjöf.

Ég fékk bómullar kusu náttföt frá ólöfu systur… ( einkvað hint í gangi? Kusur???) þau eru mjög fín og þægileg… og eru notuð þegar hin eru í þvotti ….. góð gjöf, ég bað um náttföt.

Ég fékk DvD myndina Mars attack frá Dodda… mynd sem ég í alvörunni þoli ekki, mér fannst hún ekki einusinni fyndin, og finnst hún vera svartur blettur á feril Tim Burtons.!!! Ég skipti henni fyrir miss congiality 2.

Ég var samt glöð með hugsunina að gefa mér gjöf. Og var ekkert sérstaklega óánægð neitt, ég fékk mynd í staðin sem ég vildi :)

 

Fékk geisladisk frá Hrafnhildi. Nýjasti Backstreet Boys diskurinn, skemmtilegt nok, þá er hann nokkuð góður, hljómsveitin eldist vel. ég er mjög ánægð með hann.

Alma móðir unnars gaf mér gjöf, ég var svolítið hissa, en samt ánægt, það var hálsmeni sem var ágætlega fallegt, ég veit samt ekki hvort é geti notað það, ég er voða lega hræddum ekki vegna þess ég get ekki notað neitt sem er með einhverju í… því að ég verð öll græn undan því.

Móðir mín, faðir og óskar bróðir gáfu mér mikla og fjölbreytta gjöf af skarti sem ég var hrifin af.

Ég fékk úr sem er voðalega fallegt, ég er með það á mér núna, en það er samt að gefa frá sér hellings grænan lit, sem er að pirra mig því mig langar að nota þessa klukku, ( ég finn ráð… ég finn ráð!!!) svo fékk ég hálsmeni og eyrnalokka í stíl svona lauflaga, mér fannst það voða fallegt því það minnti mig svo rosalega á næluna sem hobbitarnir fengu til að halda skikkjunum sínum… og mér fannst þær nælur svo fallegar.. svo álfískar.. :) ég var mjög glöð með það!

Frá hákoni fékk ég líka hálsmeni, það var lítið og sætt með litlum demanti fremst. Og var það voðalega falleg gjöf.  Hann reyndi reyndar að blekkja mig með því að setja litla pakkann í stóran pakka… en gleymdi að þyngja kassann svo að það væri trúanlegt! En það var samt falleg hugsun!

 

Jólin voru góð,  Svo annan í jólum fór ég á rúntinn med vinkonunum fyrir vestan, Evu, Lóu, Dominiku og náttúrulega Hrafnhildi!  við vorum með 2 digital myndavélar og fórum að skemmtilegt rúntflipperíj með þeim. og útkoman var nógu mikill pakki að myndum. svo eftir rúntin kíktum við Hrafnhildur heim til mín í laufabrauð... ( hehe ) og smonkulítið trúnó. skemmtilegur tími, og gaman að hitta hana aftur eftir allan þennan tíma. maður var farinn að sakna hennar hrottafengilega mikið.

 

26 des reyndi ég að komast heim til reykjavíkur, en það gekk ekkert var veður teft til 28 þá komst ég, og fór þá beint í vinnuna, vann þann dag og föstudaginn!

 

Á laugardeginum, já gamlárskvöld fór ég í mat til foreldra hákons, og eyddi þar kvöldinu með þeim, var það bara nokkuð skemmtilegt kvöld, við byrjuðum á að taka eitt spil að trivial pursute fyrir kvöldmat, kvöldmaturinn var alveg ljúffengur. Kvöldinu eyddum við svo fyrir framan skaupið og alskyns efni eins og flestir, og var það nokkuð notalegt. Svo rétt fyrir miðnætti fórum við út og horfðum á flugelda sýninguna sem höfuðborgarsvæðið gékk á með. Falleg sjón :) ég tók upp nokkurn part af því.  

Umræður sem voru fyrr um kvöldið, hvort að prikið af flugeldunum gæti slasað mann kom fram… og fengum við líka svarið þegar flugeldaprik lenti á Hákoni og Herdísi systur hans.

Eftir flugeldana, og allt knúsið leiddum við leið okkar í Áramóta partý hjá Davíð sem var niður í bæ.

Skemmtilegt partý þar. Sem var alveg langt undir morgun. Spjallað grínar og spilaðir drykkjuleikir var mest á dagskrá þar!… meðal annars ég of full að sýna mig fyrir myndavélum….. púfff!!!!!  

Svo eftir það reyndum við að ná leigubíl, en virtist enginn bíll vilja koma okkur til bjargar….  Á meðan settumst við Alfreð og reyndum einhvað spjall á einhverju steypugrindverki… með þeim afleiðingum að við duttum bæði niður og ofaní trjábeð…. 1 og hálfs metra fall… ekki beint þægilegt… man mest eftir að hákon dró mig uppúr þaðan!

Svo lá leið okkar á radison hótel, því okkur datt í hug að leigubílar mundi koma frekar þangað!

Við fórum þar inn og settumst þar að…. Og fengum okkar leigu bíl. Þar skildust leiðir okkar krakkana og við hákon fór heim til mín og sváfum þar alveg ótrúlega vel…. Og veltum okkur í þynnku daginn eftir!

Já 15 jan byrjaði jóhanna að reyna að eignast soninn… hann neitaði að koma í heiminn.. það var ekki fyrr en rétt um 2 um nóttina sem var tekið til þeirra örþrifaráða að skera barnið út.. ( keisaraskurður), og kom þar þessi litli sæti strákur 16 merkurin og 54 sentimetrarnir. Drengur unnarsson ( ekki komið nafn ennþá greinilega).

Í síðustu viku tók ég það að mer að vera veik. Ég endað upp á spítala með magaverkina sem höfðu aukist út og í gegnum desember og janúar! Alltaf þegar ég borðaði. Ég var lögð inn og sveltu þau mig eins og þau gátu í 2 daga… ( fyrir utan leifið sem ég fékk á kvöldin til að fara heim og borða örlítið í nokkra tíma) á þessum dögum fór ég í ómskoðun ekki vegna óléttu samt, þau vildu skoða líffæri mín og athuga hvort einhver sjáanleg bólga væri… en ekkert var þar að! ég því miður lét ég ekki ættingja mína fyrir vestan vita, því að það var nýtt barn komið í heimin og nóg að hugsa um, og vildi ekki láta fólk hafa neinar áhyggjur af þessu.. sem var í rauninni ekki neitt.... ég vona bara að foreldrar mínir og systkyni geti fyrirgefið mér. þau voru mjög ósátt að frétta það svolítið eftirá hvað hafði gerst.


En ég fór í magaspeglun til að athuga magann að innan. Það var ógnvægilegt… og komst ég að því að ég er mikið hræddari við að láta sprauta einhverju inn í mig… en að láta taka úr mér blóðsýni. Ég fór í kvenskoðun… og þar… skulum við ekkert ræða það! Og fór í óteljandi blóðprufur. Ég er öll marin og blá á höndunum.

Ég er komin á stjá og í vinnuna og allt… en ennþá vita hvorki e´g,.. né læknarnir hvað þetta var.. það kom fram á blóðprufum að það var einhvað að… einhver bólga væri þarna.. en þeir gátu ekki fundið út hvar hún var.. eða hvað væri að valda henni.. hún hjaðnaði bara að sjálfu sér á endanum… vona ég!

Þannig ég er orðin hress…

En ég held að þetta sé nóg af bloggi í dag yess :)

 

Danke Las Dragone

 


» 6 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  3  Alls: 22352
Könnun
Hvernig þekkiru mig?
Vinur
4 atkvæði

Fjölskildumeðlimur
3 atkvæði

Samstarfsmaður
0 atkvæði

Kunningi
0 atkvæði

Ég veit svosum hver þú ert
0 atkvæði

Þekki þig ekki rass. ég fór óvart hérna inn :/
3 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 10
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti