22.04.2008 13:53:39 / kibba
18 DAGAR Í GIFTINGUNA!!
jæja.. 18 dagar
maður er alltaf að tapa sér í pælingum og hugsunum.
núna get ég bara ekki beðið eftir þessum degi :>
það virðast allir verða orðnir jákvæðari með þetta
nema það eru bara 22 búnir að staðfesta komu sína.
og það er eiginlega bara mín meginn :/ Allir sem komast mín megin eru búnir að láta vita af sér
Friðrik ætlar samt að fara hægt og rólega að hringja í fólk og vera viss um að það komi/eða ekki
því við þurfum að vita hversu mikið af fólki kemur. give or take 2-8 mans.. en samt rúmlega hversu margir eru að koma
því það er náttúrulega matur og kökur og það er ekki þæginlegt að gera ráð fyrir 20-70 mans :/
hinsvegar 60-70 er auðveldari tala :>
en já, ég er búin að senda pósta um að fá tilboð í rósirnar og blómvöndinn.
þetta er nefnilega alveg slatti af rósum sko, og maður erfarin að plana þetta svakalega upsetningu á dúkunum
og blómum og kertum og læti sko! :>
en já
ég hvet alla til að setja lágmark 1 lag í koment í færslunni í gær því ég er að safna lögum fyrir veisluna
einhvað til að hafa í undirleik á meðan veislan er í gangi :>
EN
ég er stopp í bili
kv
Árný