hmm....
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 621 dögum
Förum í Brúðkaupsferðina okkar - Í Kringum Landið
Síðast innskráður
Ég var síðast inni þann 9 febrúar
31.05.2007 00:06:35 / kibba

THE day to day i must say

 

 

jhæja...

 

<address>
ég var að lesa greina á gæludýra spjalli trítlu... </address>

http://www.tritla.is/forum/viewtopic.php?t=7124

og 

http://www.tritla.is/forum/viewtopic.php?t=7328

ég ætla að setja inn nokkra hluti af henni sem......  

interested me...  þetta er aðalega fyrir fólkið sem sér gæludýra 

fóður í verslun... á 50 kall kúlll gott fyrr köttinn minn mahhr...

mig langar að taka fram að ég er ekki höfundur greinarinnar..  

 

Ég bara verð að segja ykkur frá einu sem ég komst að. Ég var að lesa um næringarfræði hunda og katta og rakst á fleiri en eina síðu sem fjölluðu um hvað væri raunverulega í ódýru (og lélegu) katta- og hundafóðri.



Í fyrsta lagi er aðalinnihald ódýra fóðursins alltaf einhverskonar korn, eins og maís. Þetta er t.d. copy-paste af pedigree síðunni sem sýnir innihaldið í einu af þurrfóðrinu (valið af handahófi):



GROUND YELLOW CORN, CHICKEN BY-PRODUCT MEAL, MEAT AND BONE MEAL (NATURAL SOURCE OF CALCIUM), RICE, CORN GLUTEN MEAL, ANIMAL FAT (PRESERVED WITH BHA/BHT), NATURAL POULTRY FLAVOR, DRIED BEET PULP, WHEAT FLOUR, SALT, POTASSIUM CHLORIDE, WHEAT MILL RUN, CARAMEL COLOR, VEGETABLE OIL (SOURCE OF LINOLEIC ACID), VITAMINS (CHOLINE CHLORIDE, dl-ALPHA TOCOPHEROL ACETATE [SOURCE OF VITAMIN E], L-ASCORBYL-2-POLYPHOSPHATE [SOURCE OF VITAMIN C*], VITAMIN A SUPPLEMENT, THIAMINE MONONITRATE [VITAMIN B1], BIOTIN, d-CALCIUM PANTOTHENATE, RIBOFLAVIN SUPPLEMENT [VITAMIN B2], VITAMIN D3 SUPPLEMENT, VITAMIN B12 SUPPLEMENT), TRACE MINERALS (ZINC SULFATE, COPPER SULFATE, POTASSIUM IODIDE), IRON OXIDE.



Þar sést greinilega að það sem er mest af í matnum er hakkaður maís. Síðan kemur Chicken by-product meal, sem þýðir kjúklingainnyflamjöl (sem þýðir að það eru t.d. goggar, fætur og fjaðrir í þessum mat), svo kemur meat and bone meal. Og hvað ætli það sé? Bein þýðing er kjöt og beinamáltíð, en á netinu fékk ég nánari skýringu á þessu. Hún er þessi:



Í Bandaríkjunum er sláturúrgangur bræddur og úr honum búið til kjötmjöl sem kallast "meat and bone meal". O.k. það hljómar allt í lagi EEEEEEEnn það sem flestir ekki vita er að oft er þetta ekki sláturúrgangur sem er bræddur heldur er mjög algengt að kjötmjölsverksmiðjur fái hunda og ketti sem er búið að aflífa í tonnavís og þeir eru bræddir með húð, hári, flóaól, hálsböndum og öllu. Oftast er búið að lóga þessum dýrum þannig að þeir eru ennþá fullir af eitrinu sem var notað til að aflífa þá. Oftast er farið að slá hressilega í gumsið. Einnig er verið að bræða útrunnið kjöt frá stórmörkuðum sem væri allt í lagi, nema að til að spara kaupkostnað þá er þetta kjöt ekki tekið úr umbúðum og plast og sellófan bara brætt með kjötinu. Einnig eru "roadkill" og önnur villt dýr sem finnast dauð brædd, og líka nautgripir og önnur dýr sem hafa dáið úr sjúkdómum og þar af leiðandi full af lyfjum. Ég las líka í einni greininni að smábarn sem hafði borðað nokkur korn af ódýrum kattamat hafði dáið úr pensillíneitrun, og þegar kattarmaturinn var skoðaður þá mældist 600 sinnum meira pensillín í honum heldur en leyfilegt er til manneldis.

 

ég get ekki sagt að þetta séu góðar fréttir um kattar og hunda mat..... :^) 

Það er góð ástæða fyrir því af hverju kettir og hundar þrífast ekki á þessu ódýra fóðri og hún er sú að það er verið að nota þau hráefni í matinn sem eru ódýr og þar af leiðandi mjög léleg og beinlínis hættuleg, því á endanum geta hundar og kettir orðið hættulega veikir af að borða þetta rusl (þvagsteinar, nýrnavandamál, sykursýki, hárlos, hjartavandamál og svo mætti lengi telja). Nú hugsa örugglega einhverjir "ég gef hundinum/kettinum þennan mat og þeir virðast þrífast vel af honum". Staðreyndin er sú: Ef hundar/kettir fá matarleifar og veiða fugla, flugur eða mýs þá fá þeir þá næringu sem er ekki til staðar í ódýra fóðrinu og þar af leiðandi virðast þeir þrífast vel. Ef hundar/kettir fá eingöngu þetta lélega fóður þá er alveg víst að þeir þrífast ekki á því. Það sem bendir til að gæludýrið er ekki að fá nógu góða næringu er t.d.: meltingartruflanir, hárlos, mattur og þurr feldur, flasa og ofnæmiseinkenni.



Sumir segja svo að fóðurframleiðendur fari eftir ákveðnum næringarstöðlum sem þeir eru skyldir til að fara eftir. Sannleikurinn er aftur á móti sá að lágmarksnæringargildi fyrir fóðrið samkvæmt reglum er einungis ætlað til að hundur/köttur haldi lífi, athugið HALDI LÍFI, ekki að hann þrífist á fóðrinu. Staðallinn er líka eingöngu prófaður í stuttan tíma, þannig að næringargildi matars sem uppfyllir staðla sem settir eru, er nóg til að hundur/köttur haldi lífi í stuttan tíma, en til langtíma uppfyllir staðallinn ekki næringarþörfina hjá hundi/ketti.

seinni grein sem ég fann eftir þessa konu hafði líka hluti sem fékk mig til að gapa ...

 

Innihaldslýsingin var svipuð á kattar- og hundamatnum og verra innihald heldur en ég hafði fundið á netinu. Ég skrifaði þetta ekki niður en þetta var það sem ég sá:

Fyrsta innihald hét "cereals, min 4% rice", sem þýðir að það sé mest af korni, og það getur átt við hvaða korntegund sem er og það getur verið blandað á allan mögulegan hátt, en hrísgrjón eru að minnsta kosti 4% af korninu. Oftast kallast "bulk (fylliefni)", hefur ekki mikið næringargildi fyrir hunda og ketti en gefur fyllingu.

Annað innihald hét "animal derivatives". Ég hef verið að googla hvað þetta þýðir nákvæmlega og þetta er það sem ég fann. "Animal derivatives" þýðir bókstaflega "afurð sem kemur upprunalega úr dýri". T.d. höfuð, fætur, lungu, fjaðrir, hár, ull, sæði, örvefur, óþroskuð egg, mæna, heili, kirtlar, krabbameinsvefur og sýktur vefur sem dæmi. Breskar reglur segja að það sé "All the fleshy parts of slaughtered warm-blooded land animals fresh or preserved by appropriate treatment, and all products and derivatives of the SPAM of the carcase or parts of the carcase of such animals". Ef við erum heppin þá eiga bresku (og þarafleiðandi EES) reglurnar við þennan mat, ef ekki þá eru dýrin sem éta þennan mat í verri málum. Ef það er ekki farið að EU reglum þá eru líklegast 4-D dýr í þessum mat, eða: Dead, dying, diseased and disabled, þ.e. dýr sem koma til sláturhússins sjálfdauð, deyjandi, veik eða bækluð. Það getur líka þýtt að hvaða dýr sem er gæti verið í þessu, og þá aðallega hundar og kettir, sem væri í lagi ef þetta væru ekki hundar og kettir sem er búið að svæfa, og eru ennþá með eitrið sem drap þau í sér og sem er talið að valdi ótímabærum dauða þeirra sem neita dýra sem innihalda þau.

Þriðja innihaldið var "derivatives of vegetable origin", sem þýðir bókstaflega "afurð sem kemur upprunalega úr grænmeti". Breskar reglur segja að það sé: "Derivatives resulting from the treatment of vegetable products in particular cereals, vegetables, legumes and oil seeds." Hvað ætli það sé?

svo bendir hún á nokkra linka sem ég ætla líka að setja hérna inn 

 

 Þessi síða er skrifuð af manni sem hefur rannsakað gæludýrafóðursmarkaðinn í mörg ár. Hann hefur skrifað bók um þetta málefni "Food pets die for". Mjög fróðleg síða
http://www.nexusmagazine.com/articles/petfood2.html
Fleiri greinar um kjötmjölsverksmiðjur og gæludýrafóður
http://www.nexusmagazine.com/articles/petfood1.html
Þessi síða fjallar um þá staðreynd að það er bókstaflega "dog eat dog" ástand ef maður gefur gæludýrinu sínu svona ódýrt fóður. http://www.fuzzyfaces.com/lfood2.html
Á þessari síðu eru meiri upplýsingar:
http://www.critterchat.net/foodpets.htm
Breskar reglur
http://www.opsi.gov.uk/si/si1991/Uksi_19912840_en_8.htm
Mjög fróðleg grein um hvað er raunverulega í kattarmatnum, líka listi yfir hvað sé hvað
http://www.messybeast.com/cat-food-industry
Síða sem skýrir hvað animal and meat derivatives, cereals og þessháttar er:
http://www.k9capers.com/feature-nutrition_in_pets




þetta sýnir bara svakalega hversu lítið er hugsað um mataræði þessara gæludýra okkar.. sem við eigum svokallað að elska..... .. meina værir þú til í að fá þér bjúgu.. sem væru gerð ður... svínum, hundum, plasti, mannerskju.. sjúkum dýrum.. goggum, fótum af skepnum... og álíka ( veit að bjugu hafa anskotans sull.... en halló )

mér finnst þetta hálf ógeðsleg.. og langar ekkert mikið að gefa 

dýrunum mínum svona ódyrt drasl... dettur ekki í hug að gera það  aftur.. 

þau eru betur sett með afgangin af lasagnanu mínu... 

veit að kisurnar mundu nú elska það... :haha:

 

 

 annars er bara allt gott í fréttum, er komin með fullt af börnum.. 

ég á 5 bambino froska sem ég hef í mínu víðsfræga 50L búri 

( sem haukur á ;) svo er ég með 160L búr undir salamöndur 2 

2 gubbý fiska.. 7 snigla og 2 afríska dverg klófroska 

( langt nafn heh? ;)

er reyndar að slást við þörugna núna.. 

BUT I SHALL WINN... ( shaka laka lúlú ;) 

jamm já og jæjja  

 

Hafdís og Þruma skrifaði
Hefur þú skoðað eourshop hundamatinn? Grey Þruma lítur ekki einu sinni við honum =/
Gunni skrifaði
Þú trúir því þó ekki að "MEAT AND BONE MEAL" innihaldi ólar, deyðandi efni og sellófan? Þú gerir þér grein fyrir að í bandaríkjunum er rétt eins og á íslandi manneldisnefnd (sem hefur líka fingurna í þessu) og hún sér um að engin heilsuspillandi efni finnist í matvælum. Það eru reglur um að dýramat megi ekki selja nema hann sé hæfur til manneldis á Íslandi. Ég trúi vel að barn hafi dáið úr penisillín-eitrun eftir að hafa smakkað kattamat, rétt eins og ég trúi að fólk hafi fundið hænuhöfuð í KFCinu sínu og fingur í Wendy s dollu. Málið er að hjá stórum fyrirtækjum kemur stundum fyrir að alvarleg mistök séu gerð, kannski missti starfsmaður penisillínbréf ofan í hökkunarvél (rétt sem dæmi). Ef þú last virkilega í gegnum innihaldslýsinguna á pedigree vörunni þá sérðu að hún er aðeins samansett af vörum sem eru vel hæfar til eldis lifandi spendýrs. Við höfum kalkgjafa, prótein, glúkósa og allskyns vítamín og steinefni (enda fá hundar sem borða pedigree einstaklega fallegan og gljáandi feld). Þú sagðir: "Fyrsta innihald hét "cereals, min 4% rice", sem þýðir að það sé mest af korni" (og fleira svipað nokkurm sinnum).. HVAÐ Í ANDSK*TANUM HEFURÐU Á MÓTI KORNI!?! Þú sagðir líka: ""Derivatives resulting from the treatment of vegetable products in particular cereals, vegetables, legumes and oil seeds." Hvað ætli það sé?" Svona þér að segja þá er þetta afurðir sem verða til við vinnslu á grænmeti, belgjurt og olíufræjum (fræjum sem matarolía er unnin úr). Semsagt fyllilega heilsusamlegar afurðir sem verða til við vinnslu á lífrænum vörum. Þú gerir þér sjálf grein fyrir því að undanrenna myndi kallast á ensku “Derivative resulting from processing of dairy product” – Heldurðu virkilega að af því að þú skilur setninguna ekki fyllilega þýði það að hún merki eitthvað illt? Jamm.. þú sagðir líka einhverstaðar fyrir ofan að það væru "mannerskjur í dýramat".. ERTU EKKI AÐ GRÍNAST Í MÉR? fyrir utan það að það er ekki R í manneskja þá er ekki lifandis séns í helvíti að nokkur einstaklingur færi að stunda það að henda látnu fólki í eitthvert dýrafóður. - "Heyrðu, ég hérna fann þennan róna á vappi, hvað eigum við að gera við hann?" - "Hvað segirðu? Eigum við ekki bara að skella honum í dós og selja sem dýramat!?!" Ekki að fara að gerast.. Í raun með þessari einu setningu drapstu alla rökfærslu þína í einni hendingu.. sorry:/ Góða nótt.. Gunni
krissan skrifaði
Gunni gleimir að lesa hlutan g var að lesa greina á gæludýra spjalli trítlu... http://www.tritla.is/forum/viewtopic.php?t=7124 og http://www.tritla.is/forum/viewtopic.php?t=7328 ég ætla að setja inn nokkra hluti af henni sem...... interested me... ég skrifaði þetta ekki.. you lúð.. ég setti inn þetta því þetta vakti áthigli mína... you lúð.. LESTU ALLT NÆST... ef þú horfir efst.. sérðu linkin sem þetta kom frá.. stupid people should be SHOT!!

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Heimsóknir
Í dag:  6  Alls: 22342
Könnun
Hvernig þekkiru mig?
Vinur
4 atkvæði

Fjölskildumeðlimur
3 atkvæði

Samstarfsmaður
0 atkvæði

Kunningi
0 atkvæði

Ég veit svosum hver þú ert
0 atkvæði

Þekki þig ekki rass. ég fór óvart hérna inn :/
3 atkvæði

Fjöldi atkvæða: 10
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti